Rekstur Breiðafjarðarferju 2023-2026
Vegagerðin býður hér með út rekstur Breiðafjarðarferju 2023-2026 - Sérleyfi fyrir Vegagerðina á ferjuleiðunum Stykkishólmur – Flatey – Brjánslækur – Flatey – Stykkishólmur, þ.e. að annast fólks- og vöruflutninga til og frá Stykkishólmi til Brjánslækjar, með viðkomu í Flatey. Bjóðandi skal nota ferjuna m/s Röst sem er í eigu Vegagerðarinnar og er til sýnis í samráði við hana. Samningstími er 3 ár með möguleika á framlengingu allt að 2 sinnum, 1 ár í senn.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með sunnudeginum 25. júní 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. júlí 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.